Um mig og Orðræðuna
Hvað er Orðræðan?
Hér deilir ég gagnadrifinni greiningu á íslenskum stjórnmálum, orðræðu, fjölmiðlum og miðlun.
Í langan tíma hef ég rannsakað ýmislegt — bæði í námi, vinnu og frítíma — og mig langaði að eiga einn stað þar sem ég get deilt niðurstöðum mínum og hugleiðingum með þeim sem hafa áhuga á að lesa. Þess vegna varð Orðræðan til: vettvangur til að setja fram greiningar, gögn og pælingar á aðgengilegan hátt.

Hver er ég?
Ég heiti Sindri Freyr Ásgeirsson og hef brennandi áhuga á stjórnmálum, fjölmiðlum, alþjóðamálum og því hvernig gögn geta varpað ljósi á samfélagið. Ég lauk BA-prófi í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands (2024) — þar sem lokaritgerð mín hlaut verðlaun Félags stjórnmálafræðinga fyrir bestu BA-ritgerð ársins 2025 — og MSc í Political Communication frá University of Glasgow (2025). Núna er ég að hefja framhaldsnám í Global Risk Analysis and Crisis Management við Brussels School of Governance.
Í dag starfa ég sem verkefnastjóri á skrifstofu borgarstjóra Reykjavíkur, þar sem ég vinn meðal annars að stefnumótun, greiningum og alþjóðasamskiptum borgarinnar. Samhliða því hef ég kennt aðferðafræði við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands.