Rannsókn · BA
Borgarlína í kastljósi fjölmiðla
Gagnasafn úr BA-ritgerð í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands (febrúar 2024). Innihaldsgreining á fjölmiðlaumfjöllun um Borgarlínu og samgöngusáttmálann í þremur íslenskum miðlum — mbl.is, ruv.is og visir.is — yfir lykiltímabil 2018, 2019 og 2022. Ritgerðin fékk verðlaun Félags stjórnmálafræðinga fyrir framúrskarandi lokaritgerðir í stjórnmálafræði 2024.
Hvar og hvenær var umfjöllunin?
Greinarnar 185 dreifast misjafnt eftir miðlum og tímabilum. visir.is birti meirihluta umfjöllunarinnar, og athyglin náði hámarki á kosningatímabilunum 2018 og 2022.
Greinar eftir fjölmiðlum
visir.is er með 54% af umfjöllun á meðan heildarhlutdeild þess miðils á öllum greinum er 43%.
Greinar eftir tímabili
- Jan–maí 2018 — Kosningabarátta 2018
- Sep–okt 2019 — Undirritun samgöngusáttmálans
- Jan–maí 2022 — Kosningabarátta 2022
Tveggja turna tal
Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylkingin réðu umræðunni. Fulltrúar þessara tveggja flokka komu alls 280 sinnum fyrir — meira en allir aðrir flokkar samtals. Og oddvitar sjást í 88% allra greina.
Sýnileiki stjórnmálaflokka í fjölmiðlum
Hlutfall greina með oddvita
Sýnileiki einstakra fulltrúa
Dagur B. Eggertsson stendur einn og sér. Hann kemur fyrir í 132 greinum — allir aðrir fulltrúar Samfylkingarinnar samanlagt í 17. Hjá Sjálfstæðisflokknum dreifist athyglin milli tveggja oddvita tímabilsins, Eyþórs Laxdals Arnalds og Hildar Björnsdóttur.
Samfylkingin
Sjálfstæðisflokkurinn
Hvers konar greinar — og hverjar heimildirnar?
Viðtöl og kappræður eru algengasta tegundin (91 grein), næst koma greiningar blaðamanna (72) og loks skoðanapistlar (22). Heimildanotkun er einsleit — algengast er að einungis sé vísað í einn einstakling eða fund.
Tegund greina
Heimildir eftir tegund greinar
Hvernig var málaflokkurinn rammaður inn?
Borgarlínan sjálf er langalgengasta afstöðu-innrömmunin (93 sinnum). Í þemainnrömmun ráða umhverfismál, fjárhagsmál og þétting byggðar — en flokkar leggja afar misjafna áherslu á þessi þemu.
Afstöðu-innrömmun — Allt stjórnmálafólk
Þema-innrömmun — Allt stjórnmálafólk
Eigin orð vs. túlkun blaðamanna
Dagur leggur sjálfur mun meiri áherslu á Borgarlínuna í eigin orðum heldur en blaðamenn gera þegar þeir greina umræðuna. Í þemainnrömmun snýst sambandið við — umhverfismál koma sterkar fram í viðtölum hans, en fjárhagsmál meira í greiningum blaðamanna.
Afstöðu-innrömmun · eftir tegund greinar
Þema-innrömmun · eftir tegund greinar
Eigin orð vs. túlkun blaðamanna
„Greiða umferð einkabílsins" og „bæta strætó" koma mun oftar fram í eigin viðtölum oddvitanna en í greiningum blaðamanna. „Sundabraut" sést alls ekki í greiningum. Í þemainnrömmun er sama mynstur: „þurfi að breyta" og „fjárhagsmál" eru áhersluatriði oddvitanna sjálfra sem blaðamenn endurspegla ekki.
Afstöðu-innrömmun · eftir tegund greinar
Þema-innrömmun · eftir tegund greinar
Helstu niðurstöður
Tveggja turna tal
Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylkingin ráðu umræðunni. Fulltrúar þessara tveggja flokka komu alls 280 sinnum fyrir í greinunum sem teknar voru fyrir.
Oddvitar í aðalhlutverki
Oddviti flokks kom fyrir í 88% af öllum greinum. Dagur B. Eggertsson einn kom fyrir í 132 greinum á meðan allir aðrir fulltrúar Samfylkingarinnar samanlagt komu 17 sinnum fyrir.
Innihaldsrýr fréttavinna
Í mesta lagi 79% allra greina höfðu aðeins eina heimild. Þetta undirstrikar þá kenningu að veikt fjölmiðlaumhverfi leiði til yfirborðskenndrar umfjöllunar.
Fjölmiðlar og þema-innrömmun
Fjölmiðlar virðast hafa lítil áhrif á afstöðu-innrömmun stjórnmálafólks en geta haft áhrif á þema-innrömmun — til dæmis með því að leggja meiri áherslu á fjárhagsmál en stjórnmálafólkið sjálft.
Umhverfismál vanrækt
Dagur B. Eggertsson lagði meiri áherslu á umhverfismál í eigin orðum en fjölmiðlar gerðu í greiningu sinni — vísbending um litla áherslu fjölmiðla á þennan þátt málaflokksins.